Europass starfsmenntavegabréf

Hvað er það

Skjal sem staðfestir þekkingu og færni sem handhafi hefur aflað sér í öðru Evrópulandi. Dæmi:

  • starfsþjálfun í fyrirtæki;
  • skiptinám í háskóla;
  • sjálfboðastarf á vegum frjálsra félagasamtaka.

Fyrir hvern er það

Alla sem fara til annars Evrópulands í nám eða til þess að öðlast starfsreynslu, sama á hvaða aldri þeir eru eða hvaða menntun þeir hafa.

Hver býr það til

Tvær stofnanir sem hafa gert með sér samstarfssamning um að senda nemann frá einu landi og taka á móti honum í öðru.

Samstarfsaðilarnir geta verið háskólar, aðrir skólar, fræðslustofnanir, fyrirtæki, áhugahópar, o.s.frv.

Hvar er hægt að nálgast starfsmenntavegabréfið

Vinsamlega hafðu samband við stofnunina/fyrirtækið sem sendir þig til útlandaog óskaðu eftir að haft verði samband við umsjónaraðila Europass.

Templates

Instructions